Á fundi skipulagsfulltrúa frá 12. júní 2015 var lögð fram fyrirspurn
Íslandshótels hf.
dags. 5. júní 2015 um að gera þrjú hótelherbergi á jarðhæð hússins á lóð nr. 41 við Rauðarárstíg, samkvæmt tillögu Atelier Arkitekta ehf. ódags ásamt verslunarrými sem snýr að götu. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 19. júní 2015.