Lögð fram tillaga skrifstofu framkvæmda og viðhalds. að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 42 við Funafold. Í breytingunni felst að stækka núverandi leikskóla í Funafold og gera þar 6 deilda leikskóla auk einnar leikskóladeildar, stækka lóð leikskólans, fjölga bílastæðum, færa aðkomu að leikskólanum og færa til norðurs hjólastíg fyrir ofan núverandi lóðamörk, samkvæmt uppdr. umhverfis- og skipulagssviðs dags. 24. september 2019.
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.