Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 5. janúar 2017 var lögð fram fyrirspurn alt arkitekta ehf. mótt. 12. desember 2017, um að hækka húsið á lóð nr. 2 við Básenda og byggja portbyggt ris með mænisþaki, samkvæmt uppdr. alt arkitekta ehf. dags. 8. desember 2017. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. janúar 2018.
Svar
Ekki eru gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillöguna áfram í samræmi við þær ábendingar sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. janúar 2018, á eigin kostnað. Byggingarleyfisumsóknin verður grenndarkynnt berist hún.