Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. desember 2018 var lagt fram erindi skrifstofu umhverfisgæða dags. 3. desember 2018 þar sem óskað er eftir umsögn um drög að leiðbeiningum um úrgangslausnir við íbúðarhúsnæði í Reykjavík dags. í desember 2018. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. janúar 2019.