Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 30. ágúst 2013 var lögð fram fyrirspurn Orkuveitu Reykjavíkur, dags. 22. ágúst 2013, um stofnun lóðar á jörð sinni að Elliðavatnslandi landnúmer 113489 skv. lóðarblaði, dags. 4. júlí 2013. Svæðið sem um ræðir eru svokallaðir Gvendarbrunnar, afgirt vatnstökusvæði. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.