Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. júní 2018 var lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 13. júní 2018 þar sem óskað er eftir umsögn Reykjavíkurborgar, umhverfis- og skipulagssviðs, hvort og á hvaða forsendum lagning 11kW jarðstrengs að Gvendarbrunnum í Heiðmörk skuli háð mati á umhverfisáhrifum að teknu tilliti til 2. viðauka 6. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og skrifstofu umhverfisgæða á umhverfis- og skipulagssviði. og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. júní 2018 og umsögn skrifstofu umhverfisgæða dags. 22. júní 2018.