Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Sigurðar Hallgrímssonar dags. 7. október 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 2 við Lyngháls. Í breytingunni felst að afmarkaður er nýr byggingarreitur fyrir geymslur á suður lóðarmörkum. Innan hans er heimilt að byggja geymslur á einni hæð, samkvæmt uppdr. Arkþings - Nordic ehf. dags. 26. nóvember 2019. Tillagan var grenndarkynnt frá 17. desember 2019 til og með 16. janúar 2020. Engar athugasemdir bárust.