Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Helga Hafliðasonar dags. 15. maí 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Skúlagarðsreits vestari, Hlemmur+ vegna lóðarinnar nr. 123 við Hverfisgötu. Í breytingunni felst að heimilt er að koma fyrir einni hæð ofan á núverandi útbyggingu á baklóð með aðgangi um svalagang frá stigahúsi og setja svalir á götuhlið, samkvæmt uppdr. Helga Hafliðasonar arkitekts dags. 31. maí 2018. Einnig er lagður fram skuggavarpsuppdr. dags. 31. maí 2018. Tillagan var grenndarkynnt frá 26. júlí 2018 til og með 24. júlí 2018. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Gestur Halldórsson f.h. Ingibjargar A. Gestsdóttur eiganda og íbúa að Hverfisgötu 121 dags. 9. júlí 2018. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. júlí 2018 og er nú lagt fram að nýju.