Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25 ágúst 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. ágúst 2022 þar sem sótt er um leyfi til að stækka bílakjallara, mhl. 08 og byggja þrjú steinsteypt fjölbýlishús, þriggja og fimm hæða með 58 íbúðum, einangruð og klædd að utan á lóð nr. 64 við Vesturgötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. október 2022.