Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. október 2021 þar sem sótt er um leyfi til að byggja 6-7 hæða fjölbýlishús með 51 íbúð í tveimur stigahúsum sem verða mhl. 01 á lóð nr. 64 við Vesturgötu. Erindi fylgir greinargerð um hljóðvist frá Mannvit dags. 27. september 2021 og samantekt á brunavörnum frá Mannvit dags. 27. september 2021. Stærð, A-rými: 6.204,5 ferm., 19.183,8 rúmm. B-rými: 296 ferm. Gjald kr. 12.100