Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 26. apríl 2019 var lögð fram fyrirspurn
Smáfugla ehf.
dags. 22. mars 2019 um nýbyggingu á baklóð Laugavegs 37. Gert er ráð fyrir að byggt verði ofan á núverandi vinnustofu og að timburbygging á baklóð verði flutt annað. Byggingin verði þrjár hæðir auk rishæðar og kjallara. Á jarðhæð verði gert ráð fyrir verslunum og/eða þjónustu og á efri hæðum verði íbúðir, samkvæmt uppdr. Kurt og Pí ehf. dags. 22. mars 2019. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.