Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. júní 2021 þar sem sótt er um leyfi til þess að síkka glugga og bæta við hurð, koma fyrir svölum og tröppum á suðurhlið íbúðar 0201 í íbúðarhúsi á lóð nr. 13. við Framnesveg. Erindi fylgir fundargerð húsfundar dags. 8. apríl 2021 og afrit af samþykktri aðalteikningu dags. 31. janúar 1952. Gjald kr. 12.100