Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. mars 2019 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi verslunar í veitingastað í flokki II fyrir allt að 15 gesti, einnig verður ytra byrði endurnýjað og breytt að hluta með því að færa aðalinngang til suðurs, auk þess er sótt um leyfi fyrir skilti á þaki húss nr. 70 við Langholtsveg. Gjald kr. 11.200