Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Kirkjumálasjóðs dags. 13. febrúar 2015 um að byggja skrifstofu- og þjónustuhús fyrir starfssemi Kirkjuhússins/Biskupstofu við Grensáskirkju- og safnaðarheimili á lóð nr. 66 við Háaleitisbraut, samkvæmt skissu ódags. Einnig er lagt fram bréf sviðsstjóra lögfræði- og fasteignasviðs Biskupstofu dags. 13. febrúar 2015.