Lögð fram umsókn Kristjáns Bjarnasonar dags. 26. mars 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.181.0 vegna lóðarinnar nr. 16 við Skólavörðustíg. Í breytingunni felst að porti suðvestan til í húsinu er lokað að hluta og komið fyrir flóttastiga. Við breytinguna hækkar nýtingarhlutfall lóðarinnar, samkvæmt uppdr. Arkitektastofunnar Austurvöllur ehf. dags. 2. febrúar 2019.