Nýbygging með íbúðum og veitingastöðum
Veltusund 3B
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 752
22. nóvember, 2019
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. nóvember 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þar sem sótt er um leyfi til að byggja þriggja hæða viðbyggingu úr timbri á steyptum kjallara þar sem verða tveir veitingastaðir í flokki I, tegund veitingaverslun á 1. hæð, undirbúningseldhús, starfsmannaaðstaða og tvær íbúðir á 2. hæð og þrjár íbúðir á 3. hæð ásamt matsal starfsfólks veitingastaðanna í húsi á lóð nr. 3b við Veltusund. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Erindi fylgir skýringateikningar hönnuðar dags. 3. október 2019, greinagerð hönnuðar dags. 30. september 2019 og greinagerð um brunahönnun dags. 4. október 2019. Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 21. október 2019. Stærðir stækkunar eru: Kjallari: Óbreytt. 1. hæð: 12, 9 ferm., 33,5 rúmm. 2. hæð: 48,9 ferm., 136,9 rúmm. 3. hæð: 48,9 ferm., 161,8 rúmm. Þakvirki: 23,0 ferm., 8,4 rúmm. Heildarstækkun 110,7 ferm., 340,6 rúmm. Samtals stærð eftir stækkun: 690,9 ferm., 1850,3 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið. Samþykki aðliggjandi lóðarhafa þarf fyrir gluggum á lóðamörkum.