Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 28. júlí 2015. Sótt er um leyfi til að stækka kjallara til vesturs að lóðarmörkum og stækka þannig salinn, komið verður fyrir verönd á þaki kjallaraviðbyggingar og komið er fyrir sorpgeymslu í rými 0104 sem er undirgöng með kvöð um gönguleið í húsinu á lóð nr. 26 við Klapparstíg. Óundirritað samþykki lóðahafa fyrir breytingu á gönguleiðum í undirgangi Klapparstígs 26 dags. 10. júlí 2015 fylgir. Stækkun húss er: XX ferm., XX rúmm.