Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 20. maí 2016 var lögð fram fyrirspurn Benedikts Erlingssonar, mótt. 10. maí 2016, um að skipta lóðinni nr. 22 við Laufásveg í tvær lóðir ásamt breytingu á notkun hluta hússins. Einnig er lögð fram greinargerð Benedikts Erlingssonar, ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. maí 2016.