Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 2. október 2020 var lögð fram fyrirspurn
Aflorku ehf.
dags. 21. september 2020 ásamt bréfi dags. 19. september 2020 um breytingu á notkun rýmis merkt 0102 í húsinu á lóð nr. 89 við Langholtsveg úr verslun í íbúð, samkvæmt uppdr. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. október 2020.