Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. maí 2018 var lögð fram fyrirspurn Gunnars Sigurðssonar dags. 11. apríl 2018 um að breyta og lyfta þaki hússins á lóð nr. 89 við Langholtsveg svo það gangi fram yfir útbyggingu á suðurhlið og að útvegg að norðan, stækka kvisti og endurnýja, nýta þak bílskúrs og koma fyrir útidyrahurð og glugga, samkvæmt tillögu ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. júní 2018. Einnig er lagt fram bréf
Tvíhorfs ehf.
dags. 13. febrúar 2019 þar sem óskað er eftir rökstuðningi á niðurstöðu fyrirspurnar.