breyting á deiliskipulagi
Úlfarsárdalur, reitur E
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 680
11. maí, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. apríl 2018 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 12. apríl 2018 um framkvæmdaleyfi við Leirtjörn í Úlfarsáradal, samkvæmt teikningahefti ódags. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. maí 2018.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 11. maí 2018. Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.3 í . gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016.