framkvæmdaleyfi
Sundahöfn
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 785
21. ágúst, 2020
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Faxaflóahafna sf. dags. 17. ágúst 2020 ásamt bréfi dags. 17. ágúst 2020 um framkvæmdaleyfi vegna dýpkunar Sundahafnar. Einnig er lögð fram skýrsla Verkís dags. í maí 2020 um dýpkun Sundahafnar, ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu dags. 29. júlí 2020 og uppdrættir Samsýnar dags. í apríl 2020 sem sýna losunarsvæði austan Engeyjar.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.

104 Reykjavík
Landnúmer: 219172 → skrá.is
Hnitnúmer: 10112520