Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju erindi Faxaflóahafna dags. 28. mars 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi Klettasvæðis, Skarfabakka vegna lóðanna nr. 1-3 við Korngarða og 4 við Klettagarða. Í breytingunni felst að stækka lóðina nr. 4 við Klettagarða til austurs, skipta lóðinni nr. 1-3 við Korngarða í tvær lóðir, lengja Skarfabakka um 200 metra með landfyllingu ásamt því að sjóvarnargarðurinn Ábóti er fjarlægður, samkvæmt uppdrætti ASK arkitekta dags. 23. mars 2011. Tillagan var auglýst frá 10. maí til og með 23. júní 2011. Engar athugasemdir bárust.