Á fundi skipulagsfulltrúa 7. febrúar 2014 var lögð fram umsókn Faxaflóahafna dags. 31. janúar 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi Klettasvæðis, Skarfabakka. Í breytingunni felst m.a. að löndunarsvæði á austurhluta er breytt, gerð er ný lóð fyrir spennistöð, ný bílastæði við Korngarða, lóðirnar nr. 5, 7 og 9 eru minnkaðar, byggingarreitir lóðanna nr. 1 og 3 eru breyttir o.fl., samkvæmt uppdr. Faxaflóahafna dags. 29. janúar 2014. Umsókninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.