Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. febrúar 2022 var lagt fram erindi Samgöngustofu dags. 23. febrúar 2022 þar sem óskað er eftir umsögn vegna vegna umsóknar Andra Þórssonar f.h. Abíls ehf. um að reka ökutækjaleigu að Viðarhöfða 6, á lóð nr. 4-6 við Viðarhöfða. Sótt er um leyfi fyrir 18 ökutækjum í útleigu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. mars 2022.