Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 28. júní 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25. júní 2013 þar sem spurt er hvort leyft yrði að breyta verslunar- og þjónusturýmum í íbúðarhúsnæði á annarri hæð hússins á lóðinni nr. 21-23 við Langarima. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. júlí 2013.
Bréf fyrirspyrjanda (ódags.) fylgir erindinu.