Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. september 2021 var lagt fram bréf Hákonar Arasonar f.h. 101 fasteignafélags ehf. dags. 17. ágúst 2021 um hvort það samræmist skipulagi að vera með "take away" pítsustað í húsinu á lóð nr. 83 við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. september 2021.