Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 6. febrúar 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 3. febrúar 2015 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að koma fyrir svölum á suðvesturhorn hússins og tveimur þakgluggum á lóð nr. 13 við Lokastíg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. febrúar 2015.