Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 27. júní 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. júní 2014 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að byggja sólskála á 3. hæð og svalir út frá þeim í húsinu á lóð nr. 13 við Lokastíg. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. júlí 2014.