Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 21. febrúar 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 11. febrúar 2014 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja svalir og lítinn kvist á fjölbýlishús á lóð nr. 13 við Lokastíg. Erindinu var frestað og er nú lagt fram að nýju. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. mars 2014.