Ekki eru gerðar athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað. Tillagan verður grenndarkynnt þegar hún berst. Athygli er vakin á því að tillaga að breytingu á deiliskipulagi þarf að stafa frá öllum lóðarhöfum.