Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. janúar 2017 var lögð fram fyrirspurn Stefáns Þórs Steindórssonar, mótt. 23. desember 2016, um að sameina kvisti á suðurhlið hússins á lóð nr. 15 við Bjargarstíg og setja svalir, samkvæmt uppdr. dags. 12. desember 2016. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 26. janúar 2017.