Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga
Landslags ehf.
, dags. 7. desember 2015 að deiliskipulagi Miklubrautar sem afmarkast af lóðarmörkum húsa við Miklubraut 24-66 og til norðurs af gróðurbelti meðfram Klambratúni. Til vesturs eru mörk skipulagsins við Rauðarárstíg og til austurs við Lönguhlíð. Í tillögunni felst að koma fyrir forgangsleið fyrir Strætó í austurátt meðfram Miklubraut sunnanveðri. Einnig er lagður fram skýringaruppdráttur og hljóðvistarskýrsla dags. 7. desember 2015. Tillagan var auglýst frá 8. janúar 2016 til og með 19. febrúar 2016. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Pétur Hjálmtýsson, dags. 14. janúar 2016, Guðmundur J. Guðmundsson, dags. 16. janúar 2016, Hólmfríður S. Svavarsdóttir, dags. 16. janúar 2016, Óðinn S. Ragnarsson, dags. 16. janúar 2016, Ágústa Oddsdóttir og Sæbjörn Kristjánsson, dags. 30. janúar 2016, Arngrímur Ísberg, Jóhannes Þ. Guðmundsson, Jón Ögmundur Þormóðsson og Hólmfríður Gísladóttir, dags. 1. febrúar 2016, Sara Stef. Hildardóttir f.h. íbúa við Miklabraut 60, dags. 2. febrúar 2016, Kristín H. Hálfdánardóttir, dags. 3. febrúar 2016, Erna Steina Guðmundsdóttir og Gestur R. Bárðarson, dags. 18. febrúar 2016, Sigurður Geirsson, dags. 19. febrúar 2016, Ólöf Þórey Haraldsdóttir, dags. 19. febrúar 2016, bréf Hverfisráðs Hlíða, dags. 16. febrúar 2016 og 14. desember 2015 og umsögn vegagerðarinnar, dags. 16. febrúar 2016. Að loknum athugasemdarfresti barst athugasemd frá Dóru Hjálmarsdóttur, dags. 1. mars 2016. Einnig lagt fram bréf Hverfisráðs Hlíða ásamt erindi frá íbúa í Hlíðum, dags. 14. desember 2015. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á fundi skipulagsfulltrúa 26. febrúar 2016 og er nú lagt fram að nýju.