Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagsviðs, skipulagsfulltrúa dags. 26. janúar 2015 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags Grjótaþorps. Í tillögunni felst breyting á skilmálum vegna gistiþjónustu á deiliskiplagssvæðinu. Einnig er lögð fram greinargerð dags. 26. janúar 2015. Tillagan var auglýst frá 16. febrúar til og með 30. mars 2015. Engar athugasemdir bárust.