Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. janúar 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 16. janúar 2018 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem felast í breyttu innra skipulagi og skiltum á framhlið ásamt fyrirhuguðum breytingum sem felast í fjölgun skilta á framhlið auk þess sem eignum er fækkað úr átta í sex í húsi lóð nr. 30 við Suðurlandsbraut. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. febrúar 2018.
Bréf hönnuðar dags. 8. janúar 2018 fylgir erindi. Gjald kr. 11.000