Að lokinni grenndarkynningu er er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. janúar 2021 þar sem sótt er um leyfi til að koma fyrir léttum stálsvölum á íbúð 0201 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 72 við Grettisgötu. Erindi var grenndarkynnt frá 15. febrúar 2021 til og með 24. mars 2021. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Margrét Einarsdóttir dags. 19. febrúar 2021 og 23. mars 2021. Erindi fylgir samþykki meðeigenda áritað á uppdrátt. Gjald kr. 12.100