Fyrirspurn
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 22. mars 2011 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja við vesturhlið til að koma fyrir móttöku og lagerrými við verslunarhúsið á lóð nr. 3 við Sogaveg. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 23. mars 2011.