Á fundi skipulagsfulltrúa 4. apríl 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. apríl 2014 þar sem sótt er um leyfi til að byggja yfir port við fiskbúðina á lóð nr. 3 við Sogaveg, samkvæmt uppdr. K.J. hönnun ehf. dags. 19. mars 2014. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju. Stækkun: 103,5 ferm., 326 rúmm. Gjald kr. 9.500
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Sogavegi 16 og 26, Akurgerði 1, 2, 4, 6 og 8.