Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. apríl 2014 þar sem sótt er um leyfi til að byggja yfir port við fiskbúðina á lóð nr. 3 við Sogaveg, samkvæmt uppdr. K.J. hönnun ehf. dags. 19. mars 2014. Erindi var grenndarkynnt frá 16. apríl til 14. maí 2014. Athugasemdir sendu: Baldur Ingi Jóhannsson dags. 28. apríl 2014, Rannveig Jónsdóttir dags. 7. maí 2014 og Steinbergur Finnbogason og Hrafnhildur Valdimarsdóttir dags. 13. maí 2014.