Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. september 2017 var lögð fram fyrirspurn Kjartans Hafsteins Rafnssonar, mótt. 14. júlí 2017, um aukið byggingarmagn í kjallara og fá að útbúa kalda geymslu á jarðhæð með því að byggja yfir port á lóð nr. 3 við Sogaveg, skv. uppdráttum, dags. 13. júlí 2017. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 8. september 2017.