Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 13. febrúar 215 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. febrúar 2015 þar sem spurt er hvort byggja megi við og þak yfir port, þar sem nú er stöðuleyfi fyrir frystigám við hús á lóð nr. 3 við Sogaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. febrúar 2015.