Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. október 2021 var lögð fram fyrirspurn a2f arkitekta ehf. dags. 21. september 2021 um stækkun hússins á lóð nr. 10 við Síðumúla sem felst í að byggja ofaná núverandi hús og byggja við húsið á suðausturhluta lóðarinnar. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. nóvember 2021.