Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. júlí 2017 var lögð fram fyrirspurn Sindra Más Guðbjörnssonar, mótt. 18. júlí 2017, um breytta notkun á lóð nr. 1A við Rafstöðvarveg vegna fyrirhugaðrar breytingar á skráningu á geymsluhúsnæði í æfingarsal og kröfur til bílastæðafjölda. Einnig er lögð fram greinargerð Fortis, dags. 17. júlí 2017. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. ágúst 2017.