Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. janúar 2017 var lagt fram bréf Samgöngustofu, dags. 29. nóvember 2016, þar sem óskað er eftir umsögn skipulagsfulltrúa á umsókn Andra Vals Sigurðssonar um að reka ökutækjaleigu að Básbryggju 9, lóð nr. 5-11 við Básbryggju. Sótt er um leyfi fyrir einu ökutæki. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19, janúar 2017.