Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. september 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. september 2022 þar sem sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu, steyptan kjallara og timburhæð á suðurhlið einbýlishúss á lóð nr. 76 við Nesveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. október 2022..