Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 24. júní 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 21. júní 2016 þar sem sótt er um leyfi til að byggja við norður- og austurhlið húss nr. 12B mhl. 03, byggja lyftustokk utan á vesturhlið húss nr. 12A mhl. 01 og endurnýja steinbæinn Brennu nr. 12, mhl. 02 og innrétta sem íbúð skv. samþykktu deiliskipulagi dags. 30. mars xxxx fyrir hús á lóð nr 12 við Bergstaðastræti. Meðfylgjandi er staðfesting burðarvirkjahönnuðar dags. 17. maí 2016, mat á sambrunahættu dags. 25. maí 2016, umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 10. desember 2015 og svar sömu stofnunar ódagsett. Einnig ný umsögn Minjastofnunar dags. 15. júní 2016. Stærðir samtals : Stækkun/minnkun ferm. brúttó stærðir fyrir og eftir.
Gjald kr. 10.100
Erindi var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. júlí 2016.