Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 29. janúar 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingar úr timbri á steyptum sökkli við norðaustur- og suðausturhlið með þaksvölum, auk palls framan við viðbyggingu norðausturhliðar húss á lóð nr. 27 við Grettisgötu. Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 17. janúar 2019. Stækkun: 82,1 ferm., 236,0 rúmm. Gjald kr. 11.200