Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. apríl 2021 þar sem sótt er um leyfi til að byggja einnar hæðar skrifstofuhús úr krosslímdum timbureiningum ásamt auglýsingaskiltaturni við innkeyrslu á lóð nr. 15 við Hestháls. Lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. ágúst 2020. Erindi fylgja útreikningar á varmatapsramma dags. 19. mars 2021 og greinargerð hönnunarstjóra um ábyrgðarsvið hönnuða ódagsett. Stærð, mhl. 01: 139,8 ferm., 378,4 rúmm. Gjald kr. 12.100