Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn
Arkís Arkitekta ehf.
dags. 12. febrúar 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 10 við Bæjarflöt. Í breytingunni felst að komið er fyrir nýrri innkeyrslu á lóð ásamt því að norðausturhluti lóðar er girtur af og hliði komið fyrir í nýrri innkeyrslu, samkvæmt uppdr.
Arkís Arkitekta ehf.
dags. 31. janúar 2020. Erindi var grenndarkynnt frá 14. maí 2020 til og með 11. júní 2020. Engar athugasemdir bárust.