Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 24. mars 2015. Sótt er um leyfi til að stækka bíslag til suðurs og einnar hæðar húshluta til austurs og innrétta gistiskála í flokki V fyrir 20 gesti í húsi á lóð nr. 58B við Laugaveg. Jafnframt er erindi BN048712 dregið til baka. Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 16. febrúar 2015. Stækkun: 17,7 ferm., 50 rúmm. Gjald kr. 9.823